Erlent
24 25 26 27 28 29 30 31 32 … 334 ›
Telur að hægt hefði verið að koma í veg fyrir kafbátsslysið Starfsmaður fyrirtækisins sem átti kafbátinn sem fórst nærri flaki Títanik í fyrra segir að hægt hefði verið að komast hjá slysinu ef hlustað hefði verið á varnarorð hans. Ein síðustu skilaboðin sem bárust frá áhöfninn voru „allt í góðu hér“. Erlent 18.9.2024 09:29
Microsoft segir rússneskt tröllabú á bak við falsáróður um Harris Rannsóknir Microsoft hafa leitt í ljós að „tröllabúið“ Storm-1516, rússneskur hópur tölvuþrjóta hliðhollur stjórnvöldum í Moskvu, sé að baki myndskeiði þar sem Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna, er sökuð um að hafa ekið á stúlku og svo á brott. Erlent 18.9.2024 07:49
Neitað um lausn gegn tryggingu og á yfir höfði sér lífstíðarfangelsi Tónlistar- og athafnamaðurinn Sean Combs, betur þekktur sem Diddy eða Puff Daddy, neitaði sök þegar hann var dreginn fyrir dómara í New York í gær. Erlent 18.9.2024 06:57
169 börn sem fæddust eftir 7. október á lista yfir látnu Heilbrigðisráðuneyti Gasa hefur gefið út skjal þar sem borin eru kennsl á 34.344 einstaklinga sem hafa látist í árásum Ísraelsmanna. Um er að ræða 80 prósent þeirra sem sagðir eru hafa fallið frá því að átök brutust út í kjölfar árása Hamas á byggðir í Ísrael 7. október síðastliðinn. Erlent 18.9.2024 06:29
Settu sprengjur í símboðana Ísraelsmenn standa að baki árás á Hezbollah sem framin var í dag, þegar um 2.800 manns slöðuðust eftir að símboðar sprungu í Líbanon, Íran og Sýrlandi. Símboðarnir voru gerðir í Taívan en átt var við þá áður en þeir voru fluttir til Líbanon. Erlent 17.9.2024 23:26
Látin eftir hákarlaárás suður af Kanaríeyjum Þýskur ferðamaður er látinn eftir hákarlaárás undan ströndum Kanaríeyja. Um var að ræða konu á fertugsaldri. Hún missti fótlegg í árásinni. Erlent 17.9.2024 22:05
„Það er hula yfir sólinni“ Sjö hafa farist í miklum gróðureldum sem geisa í Portúgal og á sjötta tug hafa slasast. Íslendingur í Portó segir gulleitan reykjarmökk hafa legið yfir borginni í dag og í gær. Hún hafi aldrei upplifað annað eins. Erlent 17.9.2024 19:46
Norskur læknir grunaður um að nauðga 88 konum Fyrrverandi heimilislæknir í bænum Frosta í Noregi hefur verið ákærður fyrir að brjóta á 96 konum, og nauðga 88 þeirra. Erlent 17.9.2024 18:04
Tæplega þrjú þúsund slasaðir eftir að símboðar sprungu Rúmlega 2.800 manns eru sagðir hafa særst og átta látið lífið, þegar fjölmargir símboðar sprungu samtímis í Líbanon og Sýrlandi. Margir hinna særðu eru meðlimir hinna líbönsku Hezbollah-samtaka en samtökin eiga að hafa verið að nota símaboðana. Símboðarnir eru sagðir hafa gefið frá sér hljóð og sprungið skömmu síðar. Erlent 17.9.2024 14:38
Stækkar herinn í þriðja sinn Vladimír Pútín, forseti Rússlands, gaf í gær út þá skipun að her ríkisins yrði stækkaður. Atvinnuhermönnum yrði fjölgað um 180 þúsund og yrðu því alls ein og hálf milljón. Skipunin á að taka gildi þann 1. desember en þetta er í þriðja sinn frá því innrás Rússa í Úkraínu hófst í febrúar 2022 sem Pútín gefur út skipun sem þessa. Erlent 17.9.2024 13:07
Verður kanslaraefni Kristilegra demókrata Kristilegir demókratar í Þýskalandi hafa ákveðið að Friedrich Merz, formaður CDU, verði kanslaraefni flokkanna í þingkosningum sem fram fram í Þýskalandi á næsta ári. Líklegt þykir að hann muni þar keppast um kanslaraembættið við núverandi kanslara, Olaf Scholz. Erlent 17.9.2024 10:22
„Ég er nauðgari eins og hinir mennirnir hér inni“ Dominique Pelicot, sem byrlaði eiginkonu sinni Gisele ólyfjan og fékk tugi manna til að nauðga henni yfir tíu ára tímabil, bar vitni í réttarhöldunum gegn honum og hinum mönnunum í dag. Þar viðurkenndi hann að hafa nauðgað konu sinni og ítrekaði að hann og hinir fimmtíu mennirnir sem hefðu verið ákærðir í salnum væru nauðgarar. Erlent 17.9.2024 09:33
Blóðug barátta um yfirráð yfir Sinaloa-samtökunum Andrés Manuel López Obrador, forseti Mexíkó, biðlaði á dögunum til leiðtoga Sinaloa-samtakanna, sem berjast nú um yfirráð yfir glæpasamtökunum alræmdu, og bað þá um að sýna ábyrgð. Umfangsmikil ofbeldisalda hefur leikið Culiacan, höfuðborg Sinaloa-héraðsins, grátt á undanförnum dögum. Erlent 17.9.2024 08:02
Lífvarðaþjónustan segist meðvituð um tíst Musk um Biden og Harris Talsmenn Lífvarðaþjónustu Bandaríkjanna (e. Secret Service) segjast meðvitaðir um færslu sem frumkvöðullinn og athafnamaðurinn Elon Musk birti á X, þar sem hann vakti athygli á því að enginn væri að reyna að ráða Joe Biden og Kamölu Harris af dögum. Erlent 17.9.2024 07:36
Flóð í Evrópu og Mjanmar og gróðureldar í Portúgal Tala látinna í flóðunum í austanverðri Evrópu heldur áfram að hækka en í gær bættust fjögur dauðsföll á listann í Póllandi, þrjú í Tékklandi og eitt í Rúmeníu. Fjölda fólks er einnig saknað en staðfest tala látinna er nú komin upp í sextán manns. Erlent 17.9.2024 07:06
Ákærur gefnar út og Sean Combs handtekinn í New York Tónlistar- og athafnamaðurinn Sean Combs, betur þekktur sem Diddy eða Puff Daddy, var handtekinn á Manhattan í New York í gærkvöldi eftir að ákærur voru gefnar út á hendur honum. Erlent 17.9.2024 06:53
Herforingi kallar eftir innrás í Líbanon Yoav Gallant, varnarmálaráðherra Ísrael, segir tímann á þrotum þegar kemur að því að koma í veg fyrir átök milli Ísrael og Hezbollah í sunnanverðu Líbanon. Ori Gordin, yfirmaður herafla Ísrael í norðri, hefur kallað eftir því að fá grænt ljós á innrás í Líbanon. Erlent 16.9.2024 16:06
Lamdi mótframbjóðanda með stól í kappræðum Sjónvarpskappræður frambjóðenda til borgarstjóra Sao Paulo leystust upp í glundroða þegar einn þeirra réðst á annan með stól. Sá sem varð fyrir árásinni hafði boðað að hann ætlaði að hleypa kappræðunum upp fyrir fram. Erlent 16.9.2024 14:37
Dæmdur fyrir barnaníðsefni en sleppur við fangelsi Sjónvarpsmaðurinn Huw Edwards, 63 ára, var í dag dæmdur í sex mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir vörslu barnakláms. Edwards, sem starfaði hjá breska ríkisútvarpinu (BBC), játaði brot sín eftir að hann fékk senda 41 mynd og myndband frá dæmdum barnaníðing. Erlent 16.9.2024 13:16
Lifa enn í vellystingum á rívíerunni þrátt fyrir refsiaðgerðir Rússneskir auðkýfingar njóta enn ljúfa lífsins á Frönsku rívíerunni þrátt fyrir að refsiaðgerðir gegn þeim vegna innrásar Rússlands í Úkraínu. Fyrrverandi saksóknari segir heimamenn spillta af fégræðgi. Erlent 16.9.2024 12:07
Litlar breytingar á fylgi eftir kappræðurnar Kappræðurnar milli Donalds Trump og Kamölu Harris í síðustu viku virðast hafa haft lítil áhrif á fylgi frambjóðendanna, þó flestir kjósendur séu sammála um að Harris hafi staðið sig betur. Hún hefur enn naumt forskot á Trump á landsvísu. Erlent 16.9.2024 10:39
Dæmdur fyrir stuttermabol á grundvelli þjóðaröryggis Karlmaður frá Hong Kong varð fyrsti maðurinn til þess að vera sakfelldur á grundvelli nýrra og umdeildra þjóðaröryggislaga kínverska yfirráðasvæðisins í dag. Hann játaði sig sekan um að klæðast stuttermabol með slagorði lýðræðissinnaðra mótmælenda. Erlent 16.9.2024 10:13
Þriggja mánaða úrkoma á þremur dögum í mannskæðum flóðum Að minnsta kosti tíu eru látnir í flóðunum í Mið-Evrópu þar sem neyðarástand ríkir víða. Á sumum stöðum hefur þriggja mánaða úrkoma fallið á aðeins þremur dögum. Erlent 16.9.2024 09:06
Grunaður tilræðismaður vildi berjast og deyja í Úkraínu Ryan Wesley Routh, 58 ára, sem handtekinn var í gær grunaður um að hafa haft í hyggju að ráða Donald Trump af dögum, lýsti því yfir á samfélagsmiðlum árið 2022 að hann væri reiðubúinn til að ferðast til Úkraínu og gefa líf sitt til að berjast við Rússa. Erlent 16.9.2024 07:31
Vaktin: Rannsakað sem banatilræði gegn Trump Karlmaður hefur verið handtekinn grunaður um banatilræði gegn Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseta á golfvelli hans í Flórída. Ýmislegt er á reiki um árásina en fyrir liggur að leyniþjónustumenn skutu í átt að meintum byssumanni. Alríkislögeglan rannsakar árásina sem banatilræði. Erlent 15.9.2024 19:28
Hafna því að CIA hafi reynt að ráða Maduro af dögum Bandaríkjastjórn hafnar ásökunum stjórnvalda í Venesúela um að bandaríska leyniþjónustan CIA hafi reynt að myrða Nicolás Maduro forseta og aðra háttsetta embættismenn. Erlent 15.9.2024 17:29
Lofar að svara árásum Húta af hörku Flugskeyti sem skotið var frá Jemen til Ísrael virkjuðu í morgun loftvarnaflautur á alþjóðlega flugvellinum í Tel Aviv í Ísrael. Flugskeytunum var skotið í loft upp af Hútum, uppreisnarmönnum í Jemen sem studdir eru af írönskum yfirvöldum. Forsætisráðherra Ísrael segir að árásunum verði svarað. Erlent 15.9.2024 12:18
Vill ekki ræða verðmiðann Bandarískur auðmaður sneri aftur til jarðar í dag ásamt áhöfn að lokinni fimm daga geimferð. Hann er fyrsti óbreytti borgarinn til að fara í geimgöngu en enginn hefur ferðast jafnt langt út í geim eftir að NASA sendi menn á tunglið. Erlent 15.9.2024 10:39
Tilkynnti of seint um fatastyrki til konunnar sinnar Þingmenn Íhaldsflokksins í Bretlandi vilja að framkvæmd verði rannsókn á tengslum Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, og fjölmiðlamannsins Waheed Alli. Samkvæmt reglum þingsins á að tilkynna um allar gjafir innan 28 daga frá kosningum en Starmer tilkynnti ekki fyrr en á þriðjudag um ýmsar gjafir frá Alli til konunnar sinnar. Erlent 15.9.2024 08:23
Neyðarástand vegna flóða í Mið- og Austur- Evrópu Viðbragðsaðilar víða um Mið- og Austur-Evrópu eru önnum kafin vegna gríðarlegra rigninga síðustu daga. Þúsundir heimila eru eyðilögð og bætt verulega í ár. Einn er látinn í Póllandi vegna flóðanna sem hafa fylgt rigningunni og fjórir í Rúmeníu. Neyðarástandi hefur víða verið lýst yfir. Búist er við því að það gæti rignt til þriðjudags sums staðar. Erlent 15.9.2024 07:43