Innlent
199 200 201 202 203 204 205 206 207 … 334 ›
Katrín með forskot á Baldur Katrín Jakobsdóttir forsetaframbjóðandi og forsætisráðherra er með 33 prósent fylgi samkvæmt nýrri skoðanakönnun Maskínu. Baldur Þórhallsson prófessor í stjórnmálafræði og mótframbjóðandi mælist með 27 prósenta fylgi. Innlent 8.4.2024 16:36
Lítil gasmengun mælst um helgina Eldgosið við Sundhnúksgígaröðina mallar áfram og er nú einn gígur virkur. Hraunflæði er nú aftur farið að renna að megninu til suðurs eftir að það flæddi til norðurs um tíma í gær. Lítil gasmengun hefur mælst um helgina. Innlent 8.4.2024 16:27
Telur að ríkisstjórnin lifi þetta ekki af Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, kallar eftir því að Íslendingar kjósi til Alþingis þar sem ríkisstjórnin hafi engan vilja til þess að gera betri hluti fyrir þjóðina. Hann segir atburðarás síðustu daga afar áhugaverða. Innlent 8.4.2024 15:46
Öllum rýmingum aflétt á Austurlandi Hættustigi og rýmingum vegna snjóflóðahættu á Seyðisfirði hefur verið aflétt. Rýmingar sem gripið var til á Austurlandi hafi því verið aflétt að fullu. Óvissustig vegna snjófljóðahættu er enn í gildi á Austfjörðum. Innlent 8.4.2024 15:41
Hefðu lent í vandræðum án frestunar Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingkona Pírata sagði það í raun eðlilegt að Birgir Ármannsson, forseti þingsins, hefði tekið öll mál af dagskrá og slitið fundi. Ríkisstjórnin sé ekki starfhæf og ekki við hæfi að ræða mál á þingi sem ekki sé hægt að leysa. Innlent 8.4.2024 15:26
Bílunum stútað á meðan þau skruppu út að borða Á meðan Hlynur og Hrafnhildur Alice skruppu að fá sér að borða í gærkvöldi voru framin skemmdarverk á bílum þeirra. Rúður voru brotnar með einhverskonar barefli og lofti hleypt úr dekkjum bílanna. Innlent 8.4.2024 15:22
Katrín ekki lengur þingmaður Katrín Jakobsdóttir, fráfarandi forsætisráðherra, er ekki lengur þingmaður. Hún sagði af sér þingmennsku í dag með bréfi sem hún sendi forseta Alþingis. Hann hóf þingfundinn í dag á því að lesa bréfið upp. Innlent 8.4.2024 15:02
Leggur aftur fram vantrauststillögu á Svandísi Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, hefur lagt fram nýja vantrauststillögu á hendur Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra. Þingmenn flokksins krefjast þess að hún víki úr embætti þegar í stað. Innlent 8.4.2024 14:39
Kynna allt saman í einum pakka Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og utanríkisráðherra, segist ekki vita hvenær viðræðum formanna stjórnarflokkanna lýkur. Þær gangi í takt við aðstæður. Bjarni ræddi við blaðamenn að loknum fundi þingflokka á Alþingi í dag. Innlent 8.4.2024 14:20
„Kröftum mínum betur varið þar, að minnsta kosti að sinni“ Gylfi Þór Þorsteinsson, teymisstjóri fjáröflunar- og kynningarsviðs Rauða krossins, verður ekki í framboði til forseta lýðveldisins í þeim kosningunum sem fram fara 1. júní næstkomandi. Innlent 8.4.2024 13:47
Þessir líklegastir til að ná í gegn í baráttunni um Bessastaði Aðalsteinn Jörgensen briddsspilari með meiru dundar sér við að teikna í frístundum og nú slagurinn um Bessastaði efstur á blaði. Innlent 8.4.2024 13:41
René kemur inn fyrir Katrínu þar til Eva Dögg snýr aftur Viðræður forystufólks stjórnarflokkanna um áframhaldandi stjórnarsamstarf eru vel á veg komnar. Þingflokkar stjórnarflokkanna, sem og aðrir þingflokkar á Alþingi, sitja nú á fundi. Þingfundur er svo fyrirhugaður klukkan þrjú. Innlent 8.4.2024 13:31
Guðni hafi „skemmt“ hugmyndir um framboð Páll Pálsson fasteignasali hyggst ekki bjóða sig fram til forseta lýðveldisins í kosningunum fyrsta dag júnímánaðar. Þetta staðfestir Páll í samtali við fréttastofu. Innlent 8.4.2024 13:08
Hvetur fólk til að finna sólmyrkvagleraugun og kíkja út í kvöld Ef veður leyfir mun deildarmyrkvi á sólu sjást frá öllu landinu í kvöld. Almyrkvi verður í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada sem er töluvert sjónarspil. Innlent 8.4.2024 13:00
Þjófarnir leika lausum hala Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á því hverjir stálu á milli tuttugu til þrjátíu milljónum króna í formi spilakassapeninga í fórum starfsfólks Öryggismiðstöðvarinnar hefur ekki leitt til handtöku. Þjófarnir leika enn lausum hala. Innlent 8.4.2024 12:11
Forystufólk stjórnarflokkanna situr enn á rökstólum Í hádegisfréttum tökum við stöðuna á stjórnarmyndunarviðræðunum eftir að Katrín Jakobsdóttir ákvað að hætta í stjórnmálum og bjóða sig fram til embættis forseta. Innlent 8.4.2024 11:39
Telja að Þórdís Kolbrún verði forsætisráðherra Fyrrverandi þingmaður Miðflokksins og fyrrverandi formaður Neytendasamtakanna spá því að Sjálfstæðisflokkurinn taki við forsætisráðuneytinu. Þá telja þeir ólíklegt að formaður flokksins geri tilkall til forsætisráðherrastólsins og líklegra að varaformaðurinn setjist í það sæti. Innlent 8.4.2024 11:16
Ráðuneytið greitt Juris hundruð milljóna vegna þjóðlendumála Á undanförnum tíu árum hefur fjármálaráðuneytið greitt lögmannastofunni Juris slf. 354 milljónir króna vegna þjóðlendismála auk greiðslna vegna lögfræðiaðstoðar. Meðal þekktra eigenda Juris eru Sigurbjörn Magnússon, stjórnarformaður Árvarkurs og einn innsti koppur í búri Sjálfstæðisflokksins, Andri Árnason sem varði Geir H. Haarde í Landsdómsmálinu og Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ og fyrrverandi stjórnarformaður Bankasýslunnar. Innlent 8.4.2024 11:14
Erfið fæðing hjá nýrri ríkisstjórn Forystufólk stjórnarflokkanna situr enn á rökstólum um framtíð stjórnarsamstarfsins og hver verði næsti forsætisráðherra og kynna ef til vill niðurstöður sínar á reglulegum þingflokksfundum strax eftir hádegi. Reiknað er með að Katrín Jakobsdóttir segi af sér þingmennsku í dag. Innlent 8.4.2024 11:00
Alma fer ekki fram Alma L. Möller landlæknir hyggst ekki gefa kost á sér sem næst forseti lýðveldisins. Hún segir að hugleiðingar um framboð hafi ekki farið lengra en að íhuga að íhuga framboð eftir að fjölmargir hafi haft samband og hvatt hana til að bjóða fram krafta sína. Innlent 8.4.2024 10:29
Vigdís Häsler hætt hjá Bændasamtökunum Vigdís Häsler hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands. Vigdís hefur sinnt starfinu síðastliðin þrjú ár en hún segist skilja stolt við starfið. Innlent 8.4.2024 10:28
Reglubundnir þingflokksfundir á dagskrá klukkan 13 Þingflokksformenn stjórnarflokkanna þriggja hafa boðað til reglubundinna funda þingflokka klukkan 13 í dag. Gera má ráð fyrir að á fundunum munu formenn flokkanna fara yfir stöðuna í viðræðunum um áframhaldandi stjórnarsamstarf. Innlent 8.4.2024 08:45
„Nú sem aldrei fyrr er þörf á vitundarvakningu um dauðann og sorgina“ Landlæknir segir að fram þurfi að fara „mun meiri og dýpri umræða í samfélaginu“ um dánaraðstoð áður en menn geta farið að ræða mögulega lagasetningu. Innlent 8.4.2024 07:37
Vegir víða lokaðir og vegfarendur beðnir um að virða það Vegir eru víða enn lokaðir og segir Vegagerðin að þótt mokstur sé hafinn víðast hvar gæti tekið nokkurn tíma að opna fyrir umferð. Innlent 8.4.2024 07:27
Tveir handteknir fyrir stórfellda líkamsárás Tveir menn voru handteknir á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi eða nótt, grunaðir um stórfellda líkamsárás. Þá voru tveir handteknir grunaðir um sölu og dreifingu fíkniefna. Innlent 8.4.2024 06:19
Gígbarmurinn brostinn og hraun rennur í norðurátt Barmur eina gígsins sem enn gýs úr milli Hagafells og Stóra-Skógfells virðist hafa brostið norðanmegin í kvöld. Innlent 7.4.2024 23:42
Hraunfossinn í nærmynd Hraunfoss rennur nú yfir gígbarminn í eina gígnum sem enn lifir í eldgosinu við Sundhnúka. Björn Steinbekk flaug dróna yfir gosið fyrr í dag og fangaði sjónarspilið í nærmynd. Innlent 7.4.2024 22:44
Ósanngjarnt gagnvart hinum hefji Katrín baráttuna strax Prófessor í stjórnmálafræði býst ekki við að biðin eftir tilkynningu um endurskipaða ríkisstjórn dragist á langinn. Hún segir það ósanngjarnt gagnvart öðrum frambjóðendum ef forsætisráðherra myndi hefja kosningabaráttuna að fullu meðan hún situr enn í ráðherrastóli. Innlent 7.4.2024 22:30
Endurmeta rýmingar í fyrramálið Rýmingar á merktum svæðum á Seyðisfirði og í Neskaupstað vegna snjóflóðahættu eru enn í gildi. Veðurstofa metur stöðuna að nýju í fyrramálið. Innlent 7.4.2024 21:44
Halla Hrund komin með lágmarksfjölda meðmælenda Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri hefur safnað lágmarksfjölda meðmæla í meðmælendasöfnun forsetaframbjóðenda á vef Ísland.is. Þetta staðfestir Sunna Kristín Hilmarsdóttir, sem er í kosningateymi Höllu, í samtali við fréttastofu. Innlent 7.4.2024 20:13