
Heimsmarkmiðin

Sjö milljónir íbúa Suður-Súdan við hungurmörk
Alvarlegur matarskortur hrjáir tæplega sjö milljónir íbúa Suður-Súdan, eða 61% þjóðarinnar, fleiri en nokkru sinni fyrr í sögu yngstu þjóðarinnar í heiminum. Í vikunni voru átta ár liðin frá sjálfstæði Suður-Súdan en nánast allan þann tíma hefur verið ófriður í landinu.

Jafnréttisskólinn með námskeið um kynjajafnrétti í Malaví og Úganda
Jafnréttisskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna við Háskóla Íslands (UNU-GEST) hefur staðið fyrir tveimur, fimm daga námskeiðum, í samstarfslöndum Íslands í alþjóðlegri þróunarsamvinnu, það sem af er árinu.

Fundur um heimsmarkmiðin hafinn í New York
Árlegur ráðherrafundur um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna hófst í New York í gær. Ísland er þar meðal 47 þjóða sem kynna landrýniskýrslur.

Marel og Thoregs hljóta styrki úr samstarfssjóði við atvinnulífið
Tvö verkefni sem byggja á íslensku hugviti og verkþekkingu hafa fengið styrk úr Samstarfssjóði við atvinnulíf um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.

Þór H. Ásgeirsson ráðinn forstöðumaður Sjávarútvegsskólans
Þór Heiðar Ásgeirsson hefur verið ráðinn forstöðumaður Sjávarútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna.

Ofbeldi innan fjölskyldna oft lífshættulegt konum
Í nítján löndum eru konur enn lagalega skyldar til að hlýða eiginmönnum og þrír milljarðar kvenna búa í löndum þar sem nauðgun í hjónabandi er ekki refsiverð.

Alþjóðlegt flóttamannaráð sett á laggirnar
Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur sett alþjóðlegt flóttamannaráð á laggirnar. Fyrsti fundur ráðsins verður haldinn um miðjan desember í Genf í Sviss.

Nemendafjöldinn tvöfaldaðist meðan á námskeiðinu stóð
Efnalitlar konur í Bashay þorpi í norður Tansaníu luku valdeflingarnámskeiði á vegum Women Power samtakanna. Námskeiðið er styrkt af utanríkisráðuneytinu og fjölmörgum öðrum bakhjörlum.

Sendifulltrúi Rauða krossins til Úganda vegna ebólu
Magna Björk Ólafsdóttir, sendifulltrúi Rauða krossins á Íslandi, tekur þátt í forvarnarstarfi vegna ebólu í Úganda.

Heimsmarkmiðagátt opnuð
Verkefnastjórn stjórnvalda um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna hefur opnað Heimsmarkmiðagátt þar sem fólki gefst kostur á að koma verkefnum tengdum heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna á framfæri.

Tekið á móti 75 flóttamönnum á þessu ári
Tekið verður á móti 75 flóttamönnum af hálfu íslenskra stjórnvalda í samstarfi við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNHCR), innlend sveitarfélög og Rauða krossinn á Íslandi á þessu ári.

Dvalarheimili á Indlandi fjármagnað með íslenskri erfðagjöf
Anna Kristín Ragnarsdóttir lést árið 2010 en hafði 17 árum áður gert erfðaskrá sem kvað á um að eigur hennar skyldu renna til SOS Barnaþorpanna. Erfðagjöfinni, 15 milljónum króna, hefur nú allri verið ráðstafað samkvæmt óskum Önnu í þremur úthlutunum.

Ísland tekur í dag sæti í stjórn Alþjóðabankans
Geir H. Haarde, fyrrverandi sendiherra Íslands í Washington, tók í dag við stöðu aðalfulltrúa kjördæmis Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna hjá Alþjóðabankanum.

Á hverjum degi deyr eitt barn á flótta
Frá því að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) hóf gagnasöfnun um afdrif flóttafólks árið 2014, hafa 32 þúsund einstaklingar látist á flótta í leit að betra lífi, þar af 1600 börn.

Samningur Íslands og FAO ræddur á ársfundi stofnunarinnar
Nýgerður samningur milli Íslands og Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) kom til umræðu í vikunni.

Hækkun framlaga stjórnvalda til UNICEF 160% milli ára
Framlög íslenskra stjórnvalda, almennings og fyrirtækja á Íslandi til Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) hafa aldrei verið hærri en á síðasta ári.Vöxturinn milli ára er 10,2% og hækkun framlaga frá íslenskum stjórnvöldum á milli áranna 2017 og 2018 tæp 160%.

FAO veitir þremur milljónum íbúa Eþíópíu neyðaraðstoð
Tæplega níu milljónir íbúa Eþíópíu þurfa á mannúðar- og matvælaaðstoð að halda vegna þurrka. Átök í landinu hafa hrakið þúsundir manna á vergang.

Námskeið í Mongólíu um sjálfbæra nýtingu beitilanda á tímum loftslagsbreytinga
Sjö daga námskeið um sjálfbæra nýtingu beitilanda á tímum loftslagsbreytinga, fór fram á vegum Landgræðsluskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna. Markmið námskeiðsins var að þjálfa heimamenn í miðlun og nýtingu þekkingar á vöktun beitilanda og styrkja skilvirka stefnumótun um sjálfbæra landnýtingu.

Ísland leggur fram fyrstu ályktanirnar í mannréttindaráðinu
Ísland gagnrýnir Filippseyjar og Sádí-Arabíu í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna. Michelle Bachelet, mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, flutti yfirlitsræðu í morgun um stöðu mannréttinda í heiminum við upphaf fundarlotu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna.

Þrettán milljónum varið til verkefnis SÞ til stuðnings hinsegin réttindum
Réttindi hinsegin fólks hafa verið meðal helstu áhersluþátta Íslands í mannréttindaráði SÞ. Utanríkisráðherra Íslands hefur ákveðið að verja þrettán milljónum króna til UN Free & Equal.

Mikilvægt að kynjasjónarmið séu höfð að leiðarljósi í jarðhitaverkefnum
Jafnréttismálin hafa átt undir högg að sækja innan orkugeirans, þar á meðal í jarðhitaverkefnum. Í nýrri skýrslu orkusjóðs Alþjóðabankans um jafnréttismál og jarðhita er sett fram aðferðafræði sem mun nýtast beint við hönnun og framkvæmd jarðhitaverkefna Alþjóðabankans.

Rauði krossinn á Íslandi veitir 25 milljónir í neyðaraðstoð vegna ebólufaraldurs
Rauði krossinn á Íslandi hefur ákveðið að styðja við neyðaraðstoð vegna ebólufaraldurs sem geisar nú í Austur-Afríku, með 25 milljóna króna framlagi.

Flóttamannastofnun býr til samráðsvettvang um réttindi LGBTI flóttafólks
Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) hleypti á dögunum af stokkunum samráðsvettvangi til að kanna leiðir til að tryggja að LGBTI flóttafólk hljóti betri vernd og geti leitað réttlætis og stuðnings þegar það verður fyrir ofbeldi og mismunun.

Fæðingarkostnaður mörgum fjölskyldum ofviða
Barnshafandi konur setja líf sitt og barna sinna í hættu vegna „skelfilegs“ og óhóflegs kostnaðar á heilsugæslustöðvum. Á hverjum degi látast 800 konur af barnsförum eða vegna fylgikvilla sem tengjast meðgöngu og fæðingu. Á hverjum degi fæðast 7 þúsund andvana börn, helmingur þeirra er á lífi við upphaf fæðingar, og önnur 7 þúsund börn deyja áður en mánuður er liðinn frá fæðingu.

Dauðaþögn um neyðina í Kamerún
Kamerún er efst á lista norska flóttamannaráðsins á árlegum lista yfir það neyðarástand sem er hvað mest vanrækt í heiminum um þessar mundir. "Alþjóðasamfélagið sefur við stýrið þegar kemur að neyðinni í Kamerún," segir Jan Egeland framkvæmdastjóri norska flóttamannaráðsins.

„Við þurfum grænt hagkerfi, ekki grátt“
Loftmengun veldur einu af hverjum níu dauðsföllum í heiminum, alls sjö milljónum ótímabærra dauðsfalla á ári hverju. Í þeim hópi eru 600 þúsund börn.

Starfshópur skilar skýrslu um mannréttindamiðaða þróunarsamvinnu
Starfshópur utanríkisráðuneytisins leggur til að mótuð verði heildræn stefnumið um mannréttindamiðaða þróunarsamvinnu og áréttar að mannréttindi verði lögð til grundvallar í þróunarsamvinnu með þátttöku íslensks atvinnulífs.

Ríki, sveitarfélög og atvinnulíf tengja við heimsmarkmiðin
Sveitarfélög hafa mörg hver unnið ötullega og með markvissum hætti að innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna í starfi sínu. Fyrirtæki vilja mæta eftirspurn og vaxandi kröfu neytenda.

Tveir sendifulltrúar frá Íslandi taka þátt í að reisa vettvangssjúkrahús í Al-Hol flóttamannabúðunum í Sýrlandi
Rauði hálfmáninn í Sýrlandi (SARC), Alþjóðaráð Rauða krossins (ICRC) og Rauði krossinn í Noregi hafa nú reist vettvangssjúkrahús í flóttamannabúðunum Al-Hol í Sýrlandi. Þörfin fyrir að hjúkra sjúklingum sem særst hafa í átökum eða þjást af veikindum fer sífellt vaxandi.

Friðargæsla er í senn nauðsyn og von
Vernd óbreyttra borgara er orðið eitt helsta verkefni friðargæslu Sameinuðu þjóðanna. Í vikunni var alþjóðlegur dagur friðargæsluliða Sameinuðu þjóðanna með yfirskriftinni: Að vernda óbreytta borgara, að gæta friðar.