Sport

Eigandi Lakers vill hitta Shaq

Jerry Buss, eigandi Los Angeles Lakers í NBA-deildinni, vill sættast við Shaquille O´Neal sem var skipt frá liðinu til Miami Heat í sumar. "Ég stefni á að bjóða honum í mat," sagði Buss. "Miðað við staðhæfingar O´Neals upp á síðkastið þá er hann ekki í neitt sérlega góðu skapi og þar sem hann er töluvert stærri en ég þá er kannski ágætt að bíða um stund með að hitta hann." Lakers fær Heat í heimsókn 25. desember næstkomandi og má búast við að andrúmsloftið verði lævi blandið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×