Heilsa

Indverskur matur

Ef indverskur matur er í uppáhaldi, þá mæli ég eindregið með þessari tilraun til matreiðslu á ekta austurlenskum rétti. Ég notaði svínahnakka sem uppistöðu í þetta sinn en auðvitað má nota hvaða kjöt sem er: Kjúkling, lamb, jafnvel sojakjöt. Þó að kryddflóra réttarins sé fjölbreytt fást kryddin öll í flestum betri búðum.

Skemmtilegt er að gera sér ferð í Sælkerabúðina á Suðurlandsbraut, en þar er ævintýralegt úrval af austurlensku hráefni.

500 g beinlaus svínahnakki 560 kr.

2 laukar (saxaðir smátt)

4 hvítlauksgeirar

1 msk. ferskur engifer (rifinn)

1 msk. hveiti

1 msk. turmeric

1 msk. garam masala

1 msk. cumin fræ

1/2 rautt chili (fræhreinsað og saxað smátt)

1 dós teningaðir tómatar m. hvítlauk 130 kr.

400 g kókosmjólk 120 kr.

600 ml kjúklingasoð (úr teningi eða krafti er í fínu lagi)

3 teningar frosið spínat (ferskt spínat er líka mjög gott, þá ca 2-3 handfyllir)



Skerið kjötið í strimla og brúnið á vel heitri pönnu. Takið kjötið af pönnunni, setjið til hliðar og látið fituna renna af. Setjið ólífuolíu á pönnuna og steikið lauk, hvítlauk og engifer saman þar til laukurinn hefur mýkst. Setjið þá hveiti, chili og krydd út á pönnuna og steikið áfram um stund. Setjið þá tómata og kókósmjólk út í og kjötið með. Blandið öllu vel saman og bætið kjúklingasoðinu svo við og látið réttinn malla um 30 mínútur. Þegar um 10 mínútur eru eftir af eldunartímanum, setjið þá spínatið út í og hrærið vel. Berið fram með soðnum hrísgrjónum og þykjustu nan-brauði sem eru tortillur sem settar eru smá stund undir grillið í ofni og svo penslaðar á báðum hliðum með hvítlaukssmjöri. Kostnaður samtals: um 900 kr.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.