Rafveita Selfossveitna seld 30. júní 2004 00:01
Hitaveita Suðurnesja hefur keypt rafveituhluta Selfossveitna fyrir 615 milljónir króna. Rúmar 400 milljónir verða greiddar með peningum en rúmar 200 milljónir verða greiddar með hlutabréfum í Hitaveitu Suðurnesja h/f. Verðlag á veitusvæði Selfossveitna lækkar um 10% þegar salan hefur gengið í gegn eða frá og með 1. september. Kaupsamningur með fullnaðarútfærslu allra þeirra atriða er kaupin varða og þjónustusamningar sem kaupunum fylgja verða lagðir fyrir viðkomandi bæjaryfirvöld í Árborg og hluthafafund Hitaveitu Suðurnesja til staðfestingar áður en kaupin taka formlega gildi. Stefnt er að því að samningar milli aðila geti tekið gildi eigi síðar en 1. september 2004. Andvirði rafveituhluta Selfossveitna verður að 2/3 hlutum greitt með peningum og 1/3 hluta með hlutabréfum í Hitaveitu Suðurnesja h/f. Samkomulag hefur orðið um að hlutabréf verði metin á genginu 2,0. Jafnframt hefur orðið samkomulag um að frá og með gildistöku sölunnar lækki verðlag á veitusvæði Selfossveitna til jafns við verðlag í Vestmannaeyjum eða um 10 %. Ekki er gert ráð fyrir breytingum í starfsmannahaldi aðila. Í tilkynningu frá Einar Njálssyni, bæjarstjóra Árborgar segir að fulltrúar eigenda Selfossveitna líti á hlutabréfaeign í Hitaveitu Suðurnesja sem langtímafjárfestingu í öflugu orkufyrirtæki með mikla vaxtarmöguleika. Jafnframt séu bæjarfulltrúar sammála um að handbært fé vegna sölunnar verði nýtt til niðurgreiðslu skulda en einnig til brýnna verkefna í sveitarfélaginu s.s. til fjármögnunar á hinum nýja Sunnulækjarskóla.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Viðskipti erlent „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Viðskipti innlent Umferðarofsi stofnar vegfarendum í hættu Samstarf Leggja upp laupana í Lundúnum Viðskipti innlent Níu holu golfvöllur á gamalli landnámsjörð Samstarf Fasteignakaup fjárfesta vísbending um að fasteignaverð haldi áfram að hækka Viðskipti innlent Dýr smjörvi á Egilsstöðum vekur mikla athygli Neytendur Ævintýralegt líf: Fjárfestirinn bankaði á gluggann á garðkofanum þar sem hann bjó Atvinnulíf Ólöglegt bleikiefni í hveitinu Neytendur Annað tilboð borist í Skagann 3X Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Leggja upp laupana í Lundúnum Annað tilboð borist í Skagann 3X Fasteignakaup fjárfesta vísbending um að fasteignaverð haldi áfram að hækka Skúli í Subway reisir glæsihótel við Jökulsárlón Búið að bjóða í Skagann 3X Brutu samkeppnislög með ótímabærri markaðssetningu Harpa vill létta lund veðurbugaðra höfuðborgarbúa Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu Berglind gengin í eigendahópinn Staðan ekki jafnsvört og sumir vilji meina Bjartmar ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri Íbúar Grafarholts geta tekið til matar síns á ný „Við erum bara að reyna að lifa af“ „Komin upp í þak“ í verðlagningu Nýir eigendur taka við Melabúðinni Festi festi kaup á Lyfju Spá aukinni verðbólgu HS Orka tryggir sér fjörutíu milljarða króna Mikil fjölgun tengifarþega en mun færri ferðast til Íslands Fleiri farþegar en minni sætanýting Mikill áhugi á þrotabúi Skagans 3X Formaður atvinnuveganefndar á hlut í félaginu sem KS keypti Landsbankinn til ráðgjafar vegna sölu Íslandsbanka KS hafi fest kaup á Kjarnafæði Norðlenska Sáraroðið frá Ísafirði notað til bjargar brenndum börnum í Afganistan Brúneggjamálið tekið fyrir í Hæstarétti Úr boltanum í tryggingarnar Leiðir dýra útrás Collab meðfram MBA-námi Sóttu fjármálastjóra til Landsbankans Sjá meira