Fasteignablað RE/MAX 5. júlí 2004 00:01
RE/MAX fasteignasölukeðjan, sem hefur getið sér gott orð um allan heim, var stofnuð í Bandaríkjunum árið 1973. Frá Bandaríkjunum breiddist hún út til Kanada og Kanadamenn kynntu hana svo í Evrópu. Fyrsta landið til að ganga inn í keðjuna í Evrópu var Spánn og þar eru um hundrað söluskrifstofur í dag. Í Evrópu hefur RE/MAX náð fótfestu í flestum löndum og er nú stærsta fasteignasölukeðjan í heiminum með um hundrað þúsund sölufulltrúa. Haustið 2002 fékk svo Noregur leyfi fyrir Ísland og RE/MAX fasteignasölurnar hófu störf sín hér. Nú í byrjun árs 2004 tók Hörður Sverrisson, framkvæmdastjóri móðurfélags RE/MAX á Íslandi, við sérleyfinu fyrir Ísland með samningi beint við RE/MAX Evrópu. Nú eru fasteignasölurnar hér á landi því aðskildar frá Noregi. Hver RE/MAX fasteignasala á Íslandi er sjálfstætt rekin samkvæmt sérleyfisamningi við móðurfélagið, RE/MAX Ísland. "Við erum með um fimmtíu sölufulltrúa í vinnu og stefnum að því að skapa eina sterka heild. RE/MAX á að virka sem ein stór fasteignasala á Íslandi," segir Hörður. Fasteignasala í sókn Undanfarna mánuði hefur verið unnið að því að styrkja innviði kerfisins hér á landi til að tryggja hágæða þjónustu til viðskipavina. "Við erum að fullmóta kerfið okkar og búa til sameiginlega söluskrá. Þannig er tölvukerfið fyrir alla starfsmenn RE/MAX á Íslandi, hvar sem þeir eru staddir. Við erum með mjög stóran innri vef og hver sölufulltrúi verður með sína eigin heimasíðu. Sölufulltrúar hvar sem er á landinu komast inn í eignabankann okkar og þeir geta selt eignir út um allan heim innan RE/MAX keðjunnar," segir Gunnar Sverrir. RE/MAX er ekki aðeins með þjónustunet um allan heim heldur leggja þeir mjög mikið upp úr persónulegri og góðri þjónustu. "Sölufulltrúar okkar eru alltaf í beinu sambandi við viðskiptavini sína og sýna fasteignirnar sjálfir. Við erum líka alltaf með opin hús þar sem við veitum viðskiptavinum allar upplýsingar. Við erum með mjög ítarlegar eignamöppur þar sem er bæði upplýsingar um eignina og alla þjónustu í hverfinu. Við veitum viðskiptavinum í rauninni allt sem þeir þurfa og fylgjum því eftir með góðri þjónustu," segir Gunnar Sverrir. "Fyrirtækjapíramídinn okkar er öfugur þar sem sölumaðurinn er á toppnum. Ef hann stendur sig ekki þá hættir hann af sjálfsdáðum. Þetta er kerfi fyrir toppsölumenn," segir Hörður, en sölufulltrúar RE/MAX fá 80 prósent af hverri sölu. "Við höfum mikinn stuðning á bak við okkur þar sem við erum hluti af stærstu fasteignakeðju í heimi. Við fáum erlenda fyrirlesara í heimsókn til að auka við fróðleik okkar og getu, höldum reglulega námskeið og sjáum til þess að sölumenn séu alltaf sem best upplýstir og viti nákvæmlega hvað þeir eiga að gera. Við hömpum sölumönnunum okkar," bætir Hörður við. RE/MAX er heldur betur á uppleið hér á Íslandi og hafa þeir aukið róðurinn mikið á síðustu mánuðum og framtíðin er björt. Sérstakt RE/MAX blað Sunnudaginn 11. júlí kemur út sérstakt RE/MAX-blað sem fylgja mun Fréttablaðinu. Þar verður fasteignaauglýsingum raðað eftir verði, fróðleikur um sölurnar og ýmsar tilkynningar. Áætlað er að blaðið komi út annan hvern sunnudag. "Það hefur sýnt sig að gott er að auglýsa á sunnudögum því fólk hefur almennt meiri tíma á þeim dögum. Síðan getur það blaðað í gegnum blaðið okkar, fundið eign eða eignir sem því líst á, komið á opið hús og fengið allar nánari upplýsingar. Síðan hringjum við á mánudeginum og höldum áfram tengslum við viðskiptavininn," segir Gunnar Sverrir. "Við erum mjög ánægðir með þetta stóra skref í birtingu fasteignaauglýsinga og er þetta mjög gott fyrir okkar lesendur þar sem fasteignablað Fréttablaðsins er mest lesna fasteignablað landsins. Fréttablaðið er mjög ánægt að veita viðskiptavinum sínum aukna þjónustu og lýsir yfir bjartsýni vegna samstarfs við RE/MAX í framtíðinni," segir Ásmundur Helgason, sölustjóri fasteignaauglýsinga Fréttablaðsins. "Við höfum fengið mikið af nýju fólki inn í fyrirtækið með ómetanlega reynslu og jákvæðan anda. Aðalatriðið hjá okkur er að veita persónulega og góða þjónustu og ná persónulegum tengslum við viðskiptavininn. Lykillinn að árangri er að gefa aðeins meira af sér en keppinauturinn og það er stefnan hjá okkur," segir Gunnar Sverrir að lokum.
Hús og heimili Mest lesið Hafði ekki hugmynd hver Palli væri á balli í Gamla bíói Lífið Forsetagæinn hyggst hlaupa sitt lengsta hlaup til þessa Lífið Fundu ástina á ný eftir skilnað Lífið Fimm ákærðir í tengslum við andlát Perry Lífið Sunneva og Tanja ræða lýtaaðgerðirnar sínar Lífið Borgaði tvöfalt meira fyrir miklu minna Lífið Sóldís Vala er Ungfrú Ísland Lífið Forstöðumaðurinn fannst í Salnum Menning Ungfrú Ísland: Svona svöruðu stúlkurnar lokaspurningunni Lífið Handtekinn í tengslum við andlát Matthew Perry Lífið Fleiri fréttir Hafði ekki hugmynd hver Palli væri á balli í Gamla bíói Forsetagæinn hyggst hlaupa sitt lengsta hlaup til þessa Fimm ákærðir í tengslum við andlát Perry Handtekinn í tengslum við andlát Matthew Perry Sunneva og Tanja ræða lýtaaðgerðirnar sínar Fundu ástina á ný eftir skilnað Ungfrú Ísland: Svona svöruðu stúlkurnar lokaspurningunni Sóldís Vala er Ungfrú Ísland Ungfrú Ísland í beinni útsendingu Benni þjálfari fann ástina hjá Jónbjörgu Kálhaus féll ekki í kramið Molly Mae og Tommy Fury hætt saman Ástin blómstrar í fjarlægð frá sviðsljósinu Heillandi einbýli fyrir 93 milljónir Borgaði tvöfalt meira fyrir miklu minna Ungfrú Ísland: Hver er líklegust til að hunsa skilaboð? Ásdís Rán 45 ára: „Drekktu kampavín í morgunmat ef þig langar“ Fullkominn forréttur sem þið verðið að prófa Jói Fel fór á skeljarnar Ætlar að verða léttur, ljúfur og kátur afi Allt í keng: „Veiðigleraugun eru okkar hjálmur“ Ungfrú Ísland í dag: „Saman geta konur sigrað heiminn“ Gunnar Nelson mætti á golfbíl „Get tekið hart á sjálfri mér þegar mér mistekst“ Upplifði fálæti lækna þegar lykkjan týndist inni í henni Ævintýralegt glæsibrúðkaup Rakelar og Andra í Bretlandi Blake Lively umdeild forsíðustúlka septemberblaðsins Gústi B leitar sér að vinnu Ætla aftur til Íslands til að græða sárin Sigmundur yrði líklega skutlaður af Kristjáni Loftssyni Sjá meira