Viðskipti innlent

Sparisjóður Hfn í slaginn

Sparisjóður Hafnarfjarðar hefur nú bæst í slaginn um þá sem þurfa lán til íbúðakaupa. Í fréttatilkynningu frá Sparisjóðnum kemur fram að hann bjóði nú viðskiptavinum sínum íbúðarlán með 4,4% föstum, verðtryggðum vöxtum til allt að 40 ára. Lánað er fyrir allt að 80% veðhlutfall á fyrsta veðrétti, og stendur það þeim til boða sem uppfylla lántökuskilyrði SPH. Lánin eru bæði ætluð til íbúðakaupa eða endurfjármögnunar eldri lána.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×