Vextir Íbúðalánasjóðs lækka 26. ágúst 2004 00:01
Vextir á lánum Íbúðalánasjóðs lækka um mánaðarmótin og það stefnir í að þeir verði lægri en 4,4 prósenta vextirnir, sem viðskiptabankarnir bjóða. Óvíst er hvort bankarnir grípa til vaxtalækkana í kjölfarið. Íbúðabréf bera nú 4,5 prósenta vexti, en í lokuðu útboði til erlendra fjárfesta, sem lauk í gær seldust bréfin á meðalgenginu 3,77. Vaxtaálag er 0,6 prósent. Stjórn sjóðsins gæti því boðið viðskiptavinum sínum 4,4 prósenta vexti, eins og viðskiptabankarnir, eða jafnvel lækkað þá niður í 4,3 prósent. Í ljós mun koma hvort bankarnir fylgi þá á eftir. Ljóst er að Íslandsbanki mun ekki ríða á vaðið, en Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka, sagði í samtali við fréttastofu í dag að vaxtalækkun hjá Íbúðalánasjóði, ein og sér, leiddi ekki til vaxtalækkunar. Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri KB-banka, sem reið á vaðið með 4,4 prósenta lán til íbúðakaupa, segist munu bíða og sjá hvaða vexti Íbúðalánasjóður bjóði viðskiptavinum um mánaðarmót, áður en gripið yrði til aðgerða. Fyrirsjáanleg vaxtalækkun hjá Íbúðalánasjóði eru vissulega gleðifréttir fyrir þá sem huga á íbúðakaup. Langflestir, sem hafa tekið lán hjá sjóðnum síðustu ár, greiða þó yfir fimm prósenta vexti af íbúðalánum og það breytist ekki. Þau lán sem bankarnir bjóða upp á með 4,4 prósenta vöxtum gætu í augum þessa fólks virst gylliboð, þrátt fyrir viðvaranir hagspekinga um bullandi lánaafyllerí á þjóðarvísu.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Viðskipti erlent Áföstu tapparnir stóðust ekki gæðapróf Neytendur Leiguverð heldur áfram að hækka Viðskipti innlent Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Viðskipti erlent „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Viðskipti innlent Umferðarofsi stofnar vegfarendum í hættu Samstarf Leggja upp laupana í Lundúnum Viðskipti innlent Níu holu golfvöllur á gamalli landnámsjörð Samstarf Fasteignakaup fjárfesta vísbending um að fasteignaverð haldi áfram að hækka Viðskipti innlent Dýr smjörvi á Egilsstöðum vekur mikla athygli Neytendur Fleiri fréttir Leiguverð heldur áfram að hækka „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Leggja upp laupana í Lundúnum Annað tilboð borist í Skagann 3X Fasteignakaup fjárfesta vísbending um að fasteignaverð haldi áfram að hækka Skúli í Subway reisir glæsihótel við Jökulsárlón Búið að bjóða í Skagann 3X Brutu samkeppnislög með ótímabærri markaðssetningu Harpa vill létta lund veðurbugaðra höfuðborgarbúa Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu Berglind gengin í eigendahópinn Staðan ekki jafnsvört og sumir vilji meina Bjartmar ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri Íbúar Grafarholts geta tekið til matar síns á ný „Við erum bara að reyna að lifa af“ „Komin upp í þak“ í verðlagningu Nýir eigendur taka við Melabúðinni Festi festi kaup á Lyfju Spá aukinni verðbólgu HS Orka tryggir sér fjörutíu milljarða króna Mikil fjölgun tengifarþega en mun færri ferðast til Íslands Fleiri farþegar en minni sætanýting Mikill áhugi á þrotabúi Skagans 3X Formaður atvinnuveganefndar á hlut í félaginu sem KS keypti Landsbankinn til ráðgjafar vegna sölu Íslandsbanka KS hafi fest kaup á Kjarnafæði Norðlenska Sáraroðið frá Ísafirði notað til bjargar brenndum börnum í Afganistan Brúneggjamálið tekið fyrir í Hæstarétti Úr boltanum í tryggingarnar Leiðir dýra útrás Collab meðfram MBA-námi Sjá meira