Viðskipti innlent

Hagnaður Samherja

Hagnaður Samherja á fyrri helmingi ársins nam um 1.100 milljónum króna, en hagnaður á öðrum ársfjórðungi var 460 milljónir króna. Hagnaður án afskrifta og fjármagnsliða nam 1.120 milljónum króna, afskrifaðar voru 554 milljónir, en hlutur í hagnaði annarra félaga nam 573 milljónum króna. Þannig var heildarhagnaður fyrir skatta 1.099 milljónir, en athygli vekur að hagnaður eftir skatta var aðeins einni milljón minni, eða 1.098 milljónir.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×