Menning

Sýning á verkum Guðmundu

Sýning á verkum Guðmundu Andrésdóttur var opnuð í Listasafni Íslands í gær. Guðmunda var einn helsti abstraktlistmálari íslensku þjóðarinnar en hún lést fyrir tveimur árum, áttræð að aldri. Hún arfleiddi Listasafn Íslands að fjölda verka sinna og á safnið nú tæplega 500 verk eftir hana. Á sýningunni sem stendur til loka októbermánaðar eru 90 verk sem spanna allan listferil Guðmundu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.