Tíska og hönnun

Litur skammdegisins frá Mac

Rauður er svo sannarlega liturinn hjá snyrtivöruframleiðandanum Mac nú á haustmánuðum. Vörurnar í rauðu línunni Red Haute er bæði hægt að nota hversdagslega og fínt og brjóta einmitt upp vinnudaginn með því að setja sterkan svip á andlitið í skammdeginu.

Línan er til í allt frá hárauðu og út í ljósbleikt og hentar því öllum. Varalitinn er til dæmis hægt að fá í óransrauðu, vínrauðu og hárauðu. Glossið er til í hárauðu og aðeins léttari rauðum lit. Kremið í línunni er mjög alhliða og hægt að nota á varir, kinnar og augu eins og hverjum og einir lystir.

Mac-snyrtivörurnar fást í Debenhams í Smáralind.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.