Ostakökur eru bestar þremur til fjórum dögum eftir að þær eru búnar til.
Best er að hafa ostakökur í kæli í 12 klst. áður en þær eru teknar úr forminu.
Kökurnar geymast vel í kæli í 3-4 vikur.
Hægt er að frysta kökurnar þótt óneitanlega séu þær betri ófrystar.
Látið ostakökur aldrei standa lengur í forminu en sólarhring þar sem formið fer að ryðga eftir það. Komi dökkir blettir á kökuna eftir formið má skera þá burt.
