Menning

Loksins aftur tvö ein

Elsku Ragga Við erum hjón á mjög skemmtilegum aldri, rétt komin niður brekkuna handan við 45 árin. Við erum loksins orðin tvö ein á heimilinu efitir gengdarlaust barnauppeldi síðustu tuttugu árin. Nú langar okkur að fara að gefa aðeins í  aftur... ferðast, vera ástfangin, fara í fallhlífastökk og stunda mikið kynlíf. Kannski er ekki raunhæft að biðja um að kynlífið verði aftur eins og  áður en börnin fóru að hrúgast upp hjá okkur, við erum samt bæði til í að auka tíðnina um nokkur hundruð prósent. Gæði kynlífsins hafa reyndar haldist  nokkuð vel öll þessi ár, við njótum okkar til hins ítrasta þá sjaldan að við lyftum okkur upp. Gætir þú elsku Ragga gefið okkur einhver góð ráð til að hrista aðeins upp í þessu, eitthvað til að blása okkur kynferðislegum eldmóði í brjóst. Með kærri kveðju, Nína og Geiri Kæru hjón Jeminn hvað þið eigið spennandi tíma framundan, og svona gasalega jákvæð bæði tvö og til í að sinna sexinu. Ég á í pokahorninu nokkrar hugmyndir sem  þið getið spáð í og mátað: 1. Farið að versla í bónus á föstudegi, takið sitt hvora körfuna og þykist ekki þekkjast. Byrjið að daðra með augunum í mjólkurkælinum, látið mjöðm strjúkast við mjöðm hjá hrökkbrauðshillunni og hvíslið einhverju lostafullu ykkar á milli í röðinni. Kelið svo á hverju einasta rauða ljósi á leiðinni heim og elskist hamslaust í forstofunni. Lestu um fleiri ráð frá Röggu kynlífsfræðingi í tímaritinu Magasín sem fylgir DV í dag.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.