Viðskipti innlent

Bjarni styrkti stöðu sína

Kaflaskipti urðu í baráttunni um Íslandsbanka í gær. Forstjóri bankans hefur styrkt stöðu sína og stuðningsmenn hans mynda kjölfestu bankans ásamt Straumi. Umtalsverðar breytingar verða í bankaráði Íslandsbanka eftir að Lífeyrissjóður verslunarmanna seldi í gær fjögurra prósenta hlut í Íslandsbanka fyrir fimm milljarða. Eftir söluna á sjóðurinn 2,77 prósent í bankanum. Kaupendur hlutarins eru Straumur, stærsti hluthafinn í bankanum sem keypti tveggja prósenta hlut, og fjögur fjárfestingarfélög sem öll áttu hluti fyrir í bankanum og keyptu hvert um hálft prósent. Eignarhlutur Straums eftir söluna í gær er um sextán prósent en félögin fjögur eiga um þrjátíu prósent. Með kaupunum í gær hafa orðið kaflaskipti í átökunum um Íslandsbanka. Sú fylking sem stutt hefur Bjarna Ármansson, forstjóra bankans, hefur aftur náð undirtökunum en þar fara fremstir í flokki Einar Sveinsson, stjórnarformaður bankans, Karl Wernersson og Jón Snorrason. Víglundur Þorsteinsson hefur verið bankaráðsmaður Lífeyrissjóðsins en hann hverfur nú úr bankaráðinu á næsta hluthafafundi líkt og einhverjir fleiri. Hann hefur verið talsmaður þess að Íslandsbanki stækki og talið skynsamlegasta kostinn að sameinast Straumi. Straumur á fyrir tveimur stjórnarmönnum en líklegt er að Helgi Magnússon verði annar þeirra. Átökin snúast að mati flestra um hvort sameina eigi Straum og Íslandsbanka. Sérfræðingar á verðbréfamarkaði telja ekki ólíklegt að fleiri breytingar verði fyrir næsta hluthafafund sem er að líkindum eftir fjórar vikur, átökin haldi því áfram og menn gætu setið uppi með gerbreytta mynd. Heimildarmenn innan Íslandsbanka segja hins vegar að Straumur hafi spennt bogann til fulls með því að binda um tuttugu milljarða í bankanum. Kaupin í gær hafi verið táknræn fyrir einingu framundan og nú semji menn um framhaldið. Frekari breytinga sé ekki að vænta.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×