Sport

Fjórir jafnir á Memorial-mótinu

Fjórir Bandaríkjamenn eru efstir og jafnir fyrir síðasta keppnisdag á Memorial-golfmótinu á Muirfield-vellinum í Ohio. David Toms, Fred Couples, Jeff Sluman og Bart Bryant eru á 12 höggum undir pari. Toms lék á 64 höggum í gær. Jonathan Kaye og Woody Austin eru höggi á eftir. Tiger Woods er í 10. sæti, fjórum höggum á eftir efstu mönnum. Það gekk illa hjá Ernie Els en hann er tólf höggum á eftir fjórmenningunum. Lokahringurinn verður í beinni útsendingu á Sýn klukkan 19 í kvöld.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×