Sport

Mátti ekki spila gegn KR

"Það var ansi svekkjandi að fá ekki að spila þennan leik," sagði Vigfús Arnar Jósepsson, sem leikur lykilhlutverk með liði Leiknis R. sem situr á toppnum í 2. deildinni. Leiknir tók á móti KR í bikarnum á sunnudag en KR-ingar vildu ekki að Vigfús léki þann leik þar sem hann er samningsbundinn félaginu en er á lánssamningi hjá Leikni. "Það er ekkert minnst á það í lánssamningnum að ég fái ekki að spila gegn KR. Svo fékk ég að vita það daginn fyrir leikinn að þeir vildu ekki að ég spilaði. Ég vildi fá að sýna mig aðeins þar sem ég hef metnað fyrir því að spila með KR í Landsbankadeildinni og einnig vildi ég sýna að Leiknir er verðugur andstæðingur. En það borgar sig ekkert að fara í fýlu út af þessu því minn draumur er að leika með KR í efstu deild," sagði Vigfús en hann er uppalinn hjá Leiknismönnum



Fleiri fréttir

Sjá meira


×