Körfubolti

Hin reynda Dinkins í raðir Njarð­víkur

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Brittany Dinkins í leik með Keflavík á sínum tíma.
Brittany Dinkins í leik með Keflavík á sínum tíma. Vísir/Andri Marinó

Hin þrítuga Brittanny Dinkins mun spila með Njarðvík í Bónus-deildinni í körfubolta á næsut leiktíð.

Dinkins er öllum hnútum kunnug hér á landi eftir að spila með Keflavík tímabilið 2017-18 og svo Fjölni síðari hluta tímabils 2022-23. Einnig hefur hún spilað í Þýskalandi, Spáni, Sviss, Síle, Jórdaníu og Egyptalandi.

Dinkins varð bikarmeistari með Keflavík árið 2018.

„Það er mikið fagnaðarefni að fá þessa öflugu stelpu til liðs við okkur,“ segir í tilkynningu Njarðvíkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×