Sport

Túnisar og Frakkar skildu jafnir

Heimamenn í Túnis gerðu sér lítið fyrir og náðu jafntefli við Frakka 26-26 í A-riðli á heimsmeistaramótinu í handknattleik. Frakkar eru í 4. sæti í riðlinum þegar þremur leikjum er lokið. Í C-riðli unnu Spánverjar Svía 33-26 eftir að Svíar höfðu haft átta marka forystu í hálfleik, 14-6. Þá máttu Norðmenn þola ósigur í gærkvöldi, töpuðu með eins marks mun fyrir Serbum, 24-25.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×