Viðskipti innlent

Hagnaður Orkuveitunnar þrefaldast

Orkuveita Reykjavíkur hagnaðist um 3,7 milljarða á síðasta ári. Þetta er nærri þrefalt meiri hagnaður en árið 2003 þegar Orkuveitan hagnaðist um 1,3 milljarða. Ársreikningur fyrirtækisins var samþykktur á stjórnarfundi í dag. Velta ársins 2004 var 13,2 milljarðar og jókst um 1,2 milljarða frá árinu áður. Eignir Orkuveitunnar námu 71,1 milljarði og jukust um 5,1 milljarð á árinu 2004. Eigið fé nam 41,9 milljörðum og jókst um rúma tvo milljarða á árinu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×