Þorvaldur, Jónas og Pétur 18. febrúar 2005 00:01 Meðal gesta í Silfri Egils á sunnudaginn verða Þorvaldur Gylfason, prófessor í hagfræði, Pétur H. Ármannsson arkitekt, Hjálmar Árnason, Stefán Jón Hafstein, Páll Baldvin Baldvinsson, Eggert Skúlason Heimir Már Pétursson og Friðbjörn Orri Ketilsson frá Frjálshyggjufélaginu. Meðal þess sem verður tekið til umfjöllunar í þættinum er staðan á húsnæðismarkaði en Hjálmar Árnason hefur sett fram harða gagnrýni á hlut bankanna í hækkuðu húsnæðisverði, salan á Landsímanum með eða án grunnnets, Ríkisútvarpið - afnotagjöld eða ekki, niðurrif gamalla húsa við Laugaveginn og bann við reykingum á veitingahúsum. Þorvaldur Gylfason kemur í viðtal um stöðu íslensku krónunnar, hinn veika dollara, þenslu og framleiðni og horfur í efnahagsmálum hér óg úti í heimi. Pétur H. Ármannsson er helsti sérfræðingur þjóðarinnar í sögu byggingalistar - við hann verður rætt um málefni Miðbæjarins og skipulagsmáli vítt og breitt. Jónas Sen setti fram harða gagnrýni á Íslensku óperuna í grein í Lesbók Morgunblaðsins á laugardag. Hann mun ræða hana og sitthvað fleira úr tónlistarlífinu. Silfur Egils er í opinni dagskrá á Stöð 2 á sunnudag, hefst klukkan tólf á hádegi. Það er svo endursýnt síðla um kvöldið en einnig er hægt að horfa á það hér í veftívíinu. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Pistlar Silfur Egils Mest lesið Loftslagsávinningur Coda Terminal er gífurlegur Sigurður Loftur Thorlacius Skoðun Skaðinn í leyndri meðferð á heimilum Matthildur Björnsdóttir Skoðun Af glyðrugangi eftirlitsstofnana Ester Hilmarsdóttir Skoðun 3.200 aumingjar (mín skoðun) Ole Anton Bieltvedt Skoðun Að verða fórnarlamb íslenskra skattyfirvalda Arnar Pálsson Skoðun „Eru ekki allir pínu einhverfir í dag?“ Andrea Ólafsdóttir Skoðun Bóluefni eða veirur Ágúst Kvaran Skoðun Linnulaus þjáning íbúa á Gaza Hrafnhildur Sverrisdóttir Skoðun Um vanda stúlkna í skólum Ragnar Þór Pétursson Skoðun Tilgangur atvinnurekstrarbanns Lárus Sigurður Lárusson Skoðun