Viðskipti innlent

Skeljungur hættir verslunarrekstri

Verslunarrekstur Skeljungs færist yfir til 10-11 verslanakeðjunnar frá og með 1. mars næstkomandi. Skeljungur hefur rekið svokallaðar Select-verslanir á sumum þjónustustöðvum sínum. Engar sýnilegar breytingar verða á verslunarrekstrinum fyrst í stað, segir á heimasíðu Skeljungs, en í framtíðinni má búast við ýmsum áherslubreytingum. Starfsfólk verslunarsviðs Skeljungs verður starfsfólk 10-11.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×