Viðskipti innlent

3,6 milljarða sveifla vöruskipta

3,6 milljarða munur er á hagnaði á vöruskiptum við útlönd í janúar í ár og í sama mánuði í fyrra. Í sl. mánuði voru fluttar út vörur fyrir 14 milljarða króna og inn fyrir 17,3 milljarða króna. Vöruskiptin í janúar voru því óhagstæð um 3,3 milljarða en í janúar 2004 voru þau hagstæð um 0,3 milljarða á föstu gengi. Verðmæti vöruútflutnings var 10,6% minna á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Verðmæti vöruinnflutnings var 12,2% meira en í fyrra á föstu gengi.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×