Viðskipti innlent

Baugur íhugar formlegt boð

Baugur íhugar nú að bjóða á nýjan leik í verslanakeðjuna Somerfield og að þessu sinni með formlegum hætti. Frá þessu greindu breskir fjölmiðlar í gærkvöldi. Haft er eftir forsvarsmönum Baugs að félagið sé að endurmeta stöðuna varðandi Somerfield og hugsanlegt sé að tilboð verði lagt fram fljótlega. Þá er einnig haft eftir íslenskum heimildarmönnum að Baugur sé við það að fá Kaupþing, Burðarás og Feng í lið með sér til þess að standa á bak við tilboðið.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×