Menning

Vindill reyktur undir pálmatré

Kúba er langstærsta eyjan í Karabíska hafinu og sú sem minnst hefur orðið fyrir vestrænum áhrifum, enda eitt af síðustu vígum kommúnismans. Sökum pólitískrar einangrunar og óvildar Bandaríkjanna í garð Kúbu hefur eyjan komist hjá því að kafna í ferðamönnum, en Bandaríkjamenn hafa sett viðskiptabann á Kúbu auk þess sem Ameríkanar mega ekki ferðast þangað og verða sektaðir heima fyrir ef þeir brjóta bannið. Eyjaskeggjar taka samt sem áður mjög vel á móti þeim ferðamönnum sem koma í heimsókn sem eru yfirleitt frá Evrópu og Kanada og tekst einstaka Ameríkana að slæðast í gegn.

Á Kúbu er lífið frekar afslappað og tíminn virðist standa í stað enda hefur Kúba haldist óbreytt í gegnum árin. Sveitin og strendurnar eru tilvaldir staðir fyrir göngufólk, hjólafólk og þá sem vilja bara sitja í rólegheitunum og reykja einn vænan vindil undir pálmatré. Eyjan hefur upp á margt að bjóða enda Kúba með eindæmum falleg og býður upp á hreinar strendur, fjölbreytta flóru og stórbrotið landslag sem heillar göngufólk. Fyrir flesta ferðamenn er Kúba þó þekktust fyrir gamla ameríska bíla, vindla, romm og skemmtun.

Nokkrar staðreyndir um Kúbu

Höfuðborg: Havana

Ríkisstjórn: Kommúnistar

Forseti: Fídel Castro

Tungumál: Spænska

Gjaldmiðill: Pesós

Stærð: 110.860 ferkílómetrar

Íbúafjöldi: Rúmlega 11 milljónir

Heitasti mánuðurinn: Júlí

Kaldasti mánuðurinn: Janúar

Rigningartímabil: Maí - október

Í höfuðborginni Havana er afslöppuð stemmning.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.