Leikjavísir

Shattered Union

Take 2 Interactive hefur tilkynnt um útgáfu á leiknum Shattered Union, nýjasti leikurinn frá PopTop Software. Leikurinn gerist í tilbúinni veröld þar sem Bandaríkin eru í rúst eftir borgarastyrjöld, en Shattered Union er “turn-based” hernaðarleikur stútfullur af hasar og kemur hann út á PC og leikjatölvurnar.  Leikmenn munu spila í gegnum mjög spennandi “single player” herferð þar sem markmiðið er að sameina landið að nýju með valdi eða í gegnum internetið í keppni við aðra leikmenn. “Með gerð leikja á borð við Railroad Tycoon og Tropico, hafa PopTop sýnt að þeir geta búið til skemmtilega og spennandi hernaðarleiki,” segir Christoph Hartmann, Forstjóri útgáfumála hjá Take 2 Games.  “Með Shattered Union, skella þeir sér í drunglalegra þema en áður, en munu engu að síður færa þessari gerð leikja sömu gæði og þeir hafa verið þekktir fyrir.” Shattered Union er áætlaður í útgáfu í haust.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.