Sport

Stórsigur hjá Magdeburg

Arnór Atlason skoraði fjögur mörk og Sigfús Sigurðsson tvö þegar Magdeburg burstaði Grosswallstadt 30-18 í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gærkvöldi. Einar Hólmgeirsson skoraði tvö mörk fyrir Grosswallstadt. Einar Örn Jónsson skoraði þrjú mörk þegar Wallau Massenheim tapaði á heimavelli fyrir Gummersbach 45-33. Þá beið Pfullingen lægri hlut á heimavelli fyrir Hamborg, 38-32.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×