Sport

Fjölnir lagði HK í 1. deild

Fjölnir vann HK á útivelli með tveimur mörkum gegn engu í 1. deild karla í knattspyrnu í gærkvöld. Atli Guðnason skoraði bæði mörk Fjölnis sem er í sjötta sæti deildarinnar með 6 stig en HK er í áttunda sæti með 5 stig. Það eru fjórir leikir á dagskrá í kvöld. Víkingur Ólafsvík og Haukar eigast við, Þór fær Völsung í heimsókn, Víkingur Reykjavik mætir KA og KS tekur á móti Breiðabliki á Siglufirði. Í 2. deild karla vann Njarðvík Selfoss 2-1 og ÍR lagði Aftureldingu 3-2.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×