Sport

Hannes skoraði í stórslagnum

U21 landsliðsmaðurinn Hannes Sigurðsson skoraði síðara mark Viking Stavanger sem sigraði Vålerenga í Osló 2-1 í í dag í fyrsta leik 11.umferðar í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Árni Gautur Arason var í marki Vålerenga sem er jafnt Viking að stigum í 2. og 3. sæti deildarinnar með 18 stig. Mark Hannesar var sérlega glæsilegt og kom Viking í 2-0 í seinni hálfleik og var fyrsta mark Hannesar í deildinni í sumar. Árni Gautur Arason stendur sem kunnugt er í marki Vålerenga en Viking hafði ekki skorað í 432 mínútur samtals í deildinni þegar Egil Østenstad kom liðinu í 1-0 í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×