Sport

Everton á eftir Bellamy

Úrvalsdeildarilið Everton virðist vera líklegasta liðið til að landa vandræðagemsanum Craig Bellamy frá Newcastle, eftir að útséð virðist með það að Celtic í Skotlandi hafi efni á honum. Bellamy á ekki afturkvæmt til Newcastle eftir að hafa kallað Graeme Souness knattspyrnustjóra liðsins lygara í beinni sjónvarpsútsendingu og Gordon Strachan hjá Celtic, segir lið sitt ekki hafa efni á að kaupa hann. Everton er á höttunum eftir sterkum sóknarmanni fyrir átökin í vetur, ekki síst af því þeir verða með í meistaradeild Evrópu. Það verður forvitnilegt að sjá hvort af félagaskiptunum, en Bellamy myndi þá hugsanlega hitta fyrir annan vandræðagemling í framlínu liðsins, tugthúsliminn Duncan Ferguson, en ljóst er að þeir tveir gætu áræðanlega valdið miklum usla hjá vörnum andstæðinganna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×