Sport

Safnaði fé fyrir Watford

Tónlistarmaðurinn Sir Elton John safnaði 1,3 milljónum sterlingspunda, eða 155 milljónum íslenskra króna, fyrir fótboltaliðið Watford. Sir Elton, sem er gallharður stuðningsmaður félagsins, hélt tónleika á laugardag og 23 þúsund áhorfendur mættu. Popparinn segir að upphæðina eigi Watford að nota til þess að kaupa leikmenn. Landsliðsmaðurinn Heiðar Helguson leikur með félaginu en mörg ensk lið vilja krækja í leikmanninn. Nú gæti Watford hins vegar notað peninga Eltons Johns til þess að gera nýjan samning við Heiðar en samningur hans rennur út næsta sumar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×