Sport

Samið um vistaskipti Arnesens

Chelsea og Tottenham náðu í gærkvöldi samkomulagi um vistaskipti Franks Arnesens frá Tottenham til Chelsea. Arnesen var tæknistjóri Tottenham en fyrr í sumar reyndi Chelsea að lokka hann til sín. Arnesen var samningsbundinn Tottenham og félagið klagaði Chelsea til enska knattspyrnusambandsins. Ekki er gefið upp hve háa fjárhæð Chelsea varð að greiða Tottenham til þess að losna við ákæru en fréttavefur BBC segir upphæðina milli 8 og 10 milljónir punda.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×