Sport

Souness er barnalegur

Lauren Robert, fyrrum leikmaður Newcastle sem gekk í raðir Portsmouth á dögunum, vandaði fyrrum knattspyrnustjóra sínum Graeme Souness ekki kveðjurnar í viðtali við The Sun í gær. Robert var ekki lengi að koma sér í ónáð hjá Souness með skoðunum sínum og gagnrýni á allt og alla hjá félaginu. Hann hafði sérstaklega sterkar skoðanir á knattspyrnustjóranum skoska og sagði hann barnalegan. "Souness tefldi fram krökkum í Evrópukeppninni og lét leikmenn eins og mig dúsa á bekknum í sérvisku sinni. Ef hann hefði ekki hagað sér svona asnalega hefðum við örugglega unnið keppnina. Maðurinn er barnalegur og ef hann heldur áfram að stýra liðinu á þennan hátt verður hann rekinn og hann á það líka skilið," sagði Robert.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×