Sport

Ronaldo fer ekki fet

Forráðamenn Manchester United hafa blásið á orðróm um að ungstirnið Cristiano Ronaldo sé á förum til Barcelona á Spáni og segja Portúgalann unga hornsteininn að framtíð félagsins. Ronaldo er á förum til heimalandsins í æfingabúðir með félögum sínum í United liðinu og forráðamenn liðsins fullyrða að nýr samningur verði forgangsatriði þegar hann snýr aftur til Englands. Ronaldo er gríðarlega vinsæll meðal stuðningsmanna United og margir voru farnir að óttast að hann kynni að fara frá félaginu. Leikmaðurinn á enn þrjú ár eftir af samningi sínum, en umboðsmaður hans hefur farið fram á bættan samning í takt við aukið vægi hans á knattspyrnuvellinum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×