Leikjavísir

Max Payne á hvíta tjaldið

Kvikmyndafyrirtækin í Hollywood eru í miklum ham þessa daganna með nýjar tilkynningar fyrir kvikmyndum sem eru framleiddar eftir tölvuleikjum. Nýjasta fregnin úr borg englanna er sú að 20th Century Fox hefur hafið samstarf við Collision Entertainment til að gera mynd eftir hinum frábæra Max Payne sem kom út árið 2001. Framleiðandinn Scott Faye sagði að myndin myndi segja frá upphafi karaktersins og hafa Dirty Harry undirtón. Hann segist að hlutverk Max Payne krefjist alvöru leikara enda persónan í leiknum sterk. Sagan um Max Payne fjallar um lögreglumann í New York sem missir konu og barn fyrir hendi óðra fíkniefnaneytenda uppdópaða á nýju efni sem heitir Valkyur. Með ekkert til að lifa fyrir færir Max sig yfir í fíkniefnalögreglunna þar sem hann kafar djúpt í innviði mafíunnar. Max er síðan gerður blóraböggull fyrir dauða félaga síns og er því hundeltur af bæði lögreglu og mafíunni.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.