Sport

Boro kaupir varnarmann

Úrvalsdeildarlið Middlesbrough hefur gengið frá kaupum á austuríska varnarmanninum Emanuel Pogatetz frá Bayer Leverkusen í Þýskalandi. Samningur Pogatetz er til fjögurra ára og kaupverðið sagt vera um 1,8 milljónir punda og leikmaður þessi ku geta leyst bæði stöðu vinstri bakvarðar og miðvarðar. "Pogatetz er öflugur leikmaður og ekki skemmir hve mikla reynslu hann hefur með landsliði og í Evrópukeppni, sem er umtalsverð fyrir mann á hans aldri," sagði Steve McClaren, stjóri Boro.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×