Sport

Figo orðaður við West Ham

Nýliðar West Ham í ensku úrvalsdeildinni eru nýjasta liðið sem orðað hefur verið við Portúgalann Luis Figo hjá Real Madrid, en framtíð kappans er mikið í umræðunni um þessar mundir eftir að ljóst þykir að hann hljóti ekki náð fyrir augum knattspyrnustjóra síns hjá Madrid. Ógrynni félaga hefur verið að gera hosur sínar grænar fyrir Figo undanfarið og West Ham er sagt hafa boðið honum 60.000 pund í vikulaun fyrir að ganga til liðs við sig. Það er þó aðeins brot af því sem Figo er að fá hjá Madrid í dag og því er alls óvíst að hann láti til leiðast. "Þetta er ekki uppboð," sagði umboðsmaður þess portúgalska í dag. "Það er alls óvíst Figo fari endilega til þess liðs sem hæst býður í hann. Hann þarf að skoða sín mál gaumgæfilega áður en hann tekur jafn stóra ákvörðun og að flytjast milli landa og spila;" bætti hann við.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×