Sport

Ronaldinho lofar mögnuðum leik

Brasilíumenn mæta Argentínumönnum í úrslitaleik Álfukeppninnar í Þýskalandi í dag. Búast má við fjörugum leik, en landslið beggja þjóða hafa ávallt spilað skemmtilega knattspyrnu. Ronaldinho, leikstjórnandinn frábæri í liði Brasilíumanna, lofaði skemmtilegum leik þegar hann ræddi við fréttamenn í gær. "Þetta verður magnaður leikur. Argentínumenn eru með marga góða leikmenn sem við verðum að passa vel. Við eigum þó að hugsa um að hafa gaman af leiknum, því svona leikir fara ekki fram á hverjum degi. Ef við náum að spila fótbolta eins og við viljum spila hann þá eigum við að vinna þennan leik." Leikurinn fer fram í Frankfurt og hefst bein útsending frá leiknum klukkan hálfsjö á Sýn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×