Sport

Kezman farinn til Atletico Madrid

Framherjinn Mateja Kezman er formlega genginn til liðs við Atletico Madrid á Spáni, en hann náði sér aldrei á strik með Englandsmeisturum Chelsea. Kaupverðið er 5,3 milljónir punda, sem er meira en Chelsea borgaði fyrir hann á sínum tíma. Kezman skoraði aðeins fjögur mörk í þeir 25 leikjum sem hann spilaði með Chelsea og náði aldrei að festa sig í sessi með liðinu. Hinn 26 ára gamli Serbi mun skrifa undir þriggja ára samning við spænska liðið síðar í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×