Sport

Phillips til Aston Villa

Framherjinn Kevin Phillips staldraði stutt við í ensku fyrstu deildinni, því í þessum töluðu orðum er lið Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni að ganga frá kaupum á leikmanninum frá Southampton, sem eins og kunnugt er féll úr úrvalsdeildinni í vor. Talið er að kaupverð leikmannsins sé um 750 þúsund pund og samningur hans hljóðar upp á tvö ár. Phillips hefur sýnt í gegn um árin að hann er traustur markaskorari, en hann skoraði 13 mörk fyrir Southampton á síðustu leiktíð, þrátt fyrir slakt gengi félagsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×