Sport

Ronaldo nálægt samningi við United

Portúgalinn Cristiano Ronaldo hjá Manchester United er kominn á fremsta hlunn með að skrifa undir nýjan samning við félagið, ef marka má orð knattspyrnustjórans Alex Ferguson, sem segir strákinn líklega ganga frá málinu síðar í kvöld. Mikið þref hefur verið um nýja samninginn, en umboðsmaður kappans vildi fá umtalsverða hækkun á launum hans í kjölfar þess að Ronaldo er að verða einn af lykilmönnum liðsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×