Sport

Yakubu fær ekki atvinnuleyfi

Framherjinn sterki Yakubu, sem Middlesbrough keypti frá Portsmouth fyrir skömmu, uppfyllir ekki þau skilyrði sem sett eru varðandi leikjafjölda með landsliði sínu og hefur því verið synjað um atvinnuleyfi á Englandi. Middlesbrough hefur afrýjað þessari ákvörðun og eru vongóðir um að orðspor Yakubu sem leikmanns á Englandi geti orðið til þess að fá atvinnuleyfi hans endurnýjað, en þeim hefur hingað til tekist að fá undanþágur á reglum þessum, nú síðast með Brasilíumanninn Juninho.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×