Sport

Lánssamningur við Liverpool

Liverpool hefur gengið frá lánssamningi við tvítugan útherja frá spænska liðinu Albacete. Mark Gonzales er Chilemaður og Liverpool fær kauprétt á honum, standi hann sig hjá félaginu. Albacete féll úr spænsku úrvalsdeildinni og er til í að selja Gonzales á 550 milljónir króna. Brasilíski sóknarmaðurinn Julio Baptista hjá Sevilla var í morgun orðaður við Arsenal. Baptista hafnaði nýjum samningi við Sevilla en hann er búinn að skora 50 mörk fyrir liðið á tveimur undanförnum leiktíðum. Frakkinn Jeremie Aliadere, 22 ára sóknarmaður sem er á mála hjá Arsenal, var í morgun lánaður til skoska liðsins Glasgow Celtic.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×