Sport

Hálfleikur í Visa-bikarleikjunum

16 liða úrslit Visa bikars karla í knattspyrnu hófust með þremur leikjum kl. 19:15 í kvöld og má segja að óvæntar tölur séu í tveimur þeirra þegar flautað hefur verið til hálfleiks. Breiðablik er 0-1 yfir gegn ÍA á Akranesi en markið skoraði Kristján Óli Sigurðsson á 27. mínútu. Þá er jafnt, 2-2 hjá 1. deildarliði Víkinga gegn KR sem komst reyndar yfir 0-2 á Víkingsvelli með mörkum Garðars Jóhannssonar og Gunnars Kristjánssonar. Heimamenn í Víkingi náðu að jafna með mörkum frá Davíð Þór Rúnarssyni og Agli Atlasyni. Og Valsmenn eru 2-0 yfir gegn Haukum á Hlíðarenda. Garðar Gunnlaugsson og Sigurður Sæberg Þorsteinsson skoruðu mörk heimamanna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×