Sport

Tveir leikir í framlengingu

Leikur Víkings og KR í 16 liða úrslitum Visa bikars karla fer í framlengingu en venjulegum leiktíma er lokið í Fossvoginum og staðan 3-3. Leikur ÍA og Breiðabliks fer einnig í framlengingu uppi á Skaga þar sem staðan að loknum 90 mínútum er 1-1. Valur hefur tryggt sér farseðilinn í 8 liða úrslitin með 5-1 sigri á Haukum. Garðar Gunnlaugsson skoraði þrennu fyrir Val en þeir Baldur Aðalsteinsson og Sigurður Sæberg Þorsteinsson eitt hvor. Rodney Parry skoraði mark Hauka þegar hann minnkaði muninn í 3-1.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×