Auraveldið 14. september 2005 00:01
Það er skammt stórra högganna á milli hjá Aurasálinni. Í síðustu viku tilkynnti hún um stofnun nýs viðskiptabanka og hefur þegar fengið firnagóð viðbrögð frá langþreyttum viðskiptavinum stórgróðabankanna. Eins og glöggir lesendur muna eftir þá mun Aurabankinn lána peninga án vaxta og mun starfsemin algjörlega byggja á trausti. Aðeins verða innheimt smávægileg þjónustugjöld til að standa straum af viðskiptunum. Vinur Aurasálarinnar hefur bent henni á að þessi framúrstefnulega hugmyndafræði kunni að eiga erindi á fleiri vígstöðum enda er stórgróðabrask víðar landlægt en í bankaheiminum. Fréttir um að götustrákarnir í Baugi Group hafi grætt tíu milljarða á fyrstu mánuðum ársins hafa komið viðvörunarbjöllum Aurasálarinnar til að hringja sem aldrei fyrr. Hér er samfélagsmein sem stinga þarf á. Aurasálin ætlar því að stofna Aurasjoppuna í kjölfar Aurabankans. Aurasjoppan verður rekin með þeirri grundvallarhugmyndafræði að hver og einn geti þar fengið þær vörur sem hann þarf en leggi inn í staðinn þá peninga sem hann getur. Aurasálin getur ekki sætt sig við að hér á landi þurfi sumir að svelta á meðan örfáir höfðingjar græði mörg mánaðarlaun verkamanns á hverjum degi. Hér er þörf á réttlæti. Viðskiptavinir Aurasjoppunnar geta fengið allar helstu nauðsynjavörur og þurfa aðeins að leggja fram tryggingu um greiðslu í gegnum Aurabankann. Þeir þurfa semsagt ekkert að borga fyrir vöruna - aðeins að eiga inneign gegn verðmætunum í Aurabankanum. Kerfið er skothelt og ólíkt því sem gerist hjá Baugsveldinu mun ágóðinn skila sér beint í vasa viðskiptavinarins í formi lægra vöruverðs í staðinn fyrir að safnast upp í erlendum bankabókum. Vissulega verður verðlagið eitthvað hærra en í öðrum búðum enda má búast við því að töluverðir dráttarvextir safnist upp hjá Aurasjoppunni fyrst um sinn á meðan beðið er eftir því að viðskiptavinirnir borgi fyrir vörur sínar. En viðskiptavinirnir geta huggað sig við það að þeim verður ekki mismunað á grundvelli efnahags og að eigandi Aurasjoppunnar, Aurasálin, mun ekki græða milljarða á hverju ári. Aðeins hófleg þjónustugjöld verða innheimt. Þannig sér Aurasálin fyrir sér að á fyrsta árinu muni þjónustugjöldin nema svona sjö prósent af heildarveltu samstæðunnar. Ef veltan er tíu milljarðar þýðir þetta að gróði Aurasálarinnar er ekki nema um sjö hundruð milljónir. Þetta er vitaskuld töluvert meira en verkamaður græðir á ári en algjörir smámunir miðað við Björgólfa, Jón Ásgeir, Bakkabræður - svo ekki sé talað um bévítans Engeyjarættina. Aurasálin mun ekki láta staðar numið við bankageirann og smásöluverslun. Auraútgerðin, Auraflug, Auraskip, Aurasjónvarp, Aurablaðið og Auraálver eru viðskiptahugmyndir sem eru langt á veg komnar. Innan skamms munu menn hlæja að Baugsveldinu - Auraveldið verður miklu stærra, miklu umfangsmeira en mun þó græða miklu minna. Og til þess að fjármagna þetta allt hyggst Aurasálin gefa út nýja mynt - Aura - sem hún mun prenta sjálf í sínum eigin Aura-Seðlabanka.
Aurasálin Mest lesið Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Viðskipti erlent Áföstu tapparnir stóðust ekki gæðapróf Neytendur „Sérkennileg“ hækkun íbúðaverðs á tímum hárra vaxta Viðskipti innlent Leiguverð heldur áfram að hækka Viðskipti innlent Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Viðskipti erlent „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Viðskipti innlent Umferðarofsi stofnar vegfarendum í hættu Samstarf Leggja upp laupana í Lundúnum Viðskipti innlent Níu holu golfvöllur á gamalli landnámsjörð Samstarf Fasteignakaup fjárfesta vísbending um að fasteignaverð haldi áfram að hækka Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Sérkennileg“ hækkun íbúðaverðs á tímum hárra vaxta Leiguverð heldur áfram að hækka „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Leggja upp laupana í Lundúnum Annað tilboð borist í Skagann 3X Fasteignakaup fjárfesta vísbending um að fasteignaverð haldi áfram að hækka Skúli í Subway reisir glæsihótel við Jökulsárlón Búið að bjóða í Skagann 3X Brutu samkeppnislög með ótímabærri markaðssetningu Harpa vill létta lund veðurbugaðra höfuðborgarbúa Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu Berglind gengin í eigendahópinn Staðan ekki jafnsvört og sumir vilji meina Bjartmar ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri Íbúar Grafarholts geta tekið til matar síns á ný „Við erum bara að reyna að lifa af“ „Komin upp í þak“ í verðlagningu Nýir eigendur taka við Melabúðinni Festi festi kaup á Lyfju Spá aukinni verðbólgu HS Orka tryggir sér fjörutíu milljarða króna Mikil fjölgun tengifarþega en mun færri ferðast til Íslands Fleiri farþegar en minni sætanýting Mikill áhugi á þrotabúi Skagans 3X Formaður atvinnuveganefndar á hlut í félaginu sem KS keypti Landsbankinn til ráðgjafar vegna sölu Íslandsbanka KS hafi fest kaup á Kjarnafæði Norðlenska Sáraroðið frá Ísafirði notað til bjargar brenndum börnum í Afganistan Brúneggjamálið tekið fyrir í Hæstarétti Úr boltanum í tryggingarnar Sjá meira