Sport

Boris hálfu stigi frá úrslitunum

Kristinn Óskar Haraldsson "Boris", var afar óheppinn að komast ekki í úrslit í keppninni Sterkasti maður heims í Kína í nótt, en hann var aðeins hálfu stigi á eftir Rússanum sem komst áfram. Boris verður engu að síður varamaður í lokakeppninni, þar sem hann var með bestan árangur þeirra sem ekki komust beint inn í keppnina. Í lokagreinin undankeppninnar, Atlassteinunum, sigraði Boris glæsilega í nótt, en því miður fyrir hann hafnaði rússneski keppandinn í öðru sæti og tryggði sér með því sæti í úrslitunum. Þetta verður að teljast afar svekkjandi fyrir Boris, sem var staðráðinn í að komast áfram í keppninni, en þetta var engu að síður mikilvæg reynsla fyrir hann.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×