Sport

Wright-Phillips til Chelsea?

Enskir fjölmiðlar greina frá því í morgun að Chelsea hafi keypt sóknarmanninn Shaun Wright-Phillips frá Manchester City. Kaupverðið er sagt 18 milljónir punda eða rúmir 2 milljarðar íslenskra króna. Þá samþykkti Chelsea í gær að losa Juan Sebastian Veron undan samningi til þess að hann gæti gengið til liðs við Inter Milan. Veron var keyptur til Chelsea á 2,8 milljarða króna en var í láni á síðustu leiktíð hjá Inter.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×