Sport

Skagamenn fallnir úr keppni

Það leit ekki út fyrir að Skagamenn væru með nokkra löngun til að komast áfram í Intertoto bikarnum þegar þeir léku síðari leik sinn gegn finnska liðinu Inter Turku í gær. Lykilmenn ÍA voru hvíldir í leiknum og Gunnlaugur Jónsson, Reynir Leósson og Hjörtur Hjartarson spiluðu ekki með og Dean Martin kom inn sem varamaður.Ungt lið ÍA byrjaði leikinn betur en Finnarnir komust yfir gegn gangi leiksins á 25.mínútu og eftir það dofnaði yfir leik ÍA. Þegar Inter Turku komst síðan í 2-0 gáfust Skagamenn upp, fengu á sig tvö mörk til viðbótar á síðasta stundarfjórðungi leiksins og töpuðu 4-0. Fyrri leikurinn í Finnlandi endaði með markalausu jafntefli og stuðningsmenn ÍA voru því bjartsýnir á að sýnir menn kæmust áfram. Þeir hafa þó vafalítið orðið fyrir miklum vonbrigðum í gær.Lítið sem ekkert bit var í sóknarleik ÍA í leiknum og leiðinlegt að sjá leikmenn liðsins hreinlega gefast upp þegar á móti blés. Inter fer áfram og leikur gegn Varteks frá Króatíu í næstu umferð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×