Fastir pennar

Nýir leiðtogar í Ísrael

Harðlínumaðurinn og fyrrverandi hershöfðinginn Ariel Sharon var af mörgum talinn maður að meiri þegar hann tók ákvörðun um það á síðari hluta nýliðins árs að flytja landnemabyggðirnar frá Gaza og láta Palestínumönnum landsvæðið eftir. Þessi ákvörðun hans féll ekki öllum Ísraelsmönnum vel í geð en á alþjóðavettvangi mæltist þessi gerð hans yfirleitt vel fyrir.

Sharon hefur á stjórnmálaferli sínum fyrst og fremst verið þekktur fyrir harðlínustefnu sínu gagnvart Palestínumönnum og sem einn þekktasti hershöfðingi Ísraela hefur hann átt þátt í mörgum mjög umdeildum hernaðaraðgerðum þeirra. Nægir þar að nefna Yom Kippur stríðið 1973 og árás Ísraela á flóttamannabúðir í Beirút 1982. Þess vegna kom mörgum á óvart stefnubreyting hans í haust og þótt margir landsmenn hans lýstu efasemdum um þessar gerðir er engu að síður ljóst að stór hópur fylkti sér að baki Sharon í þessum efnum. Það sýnir mikið fylgi við nýstofnaðan flokk hans Kadima, sem mun þýða áfram.

Skarðið sem Ariel Sharon, fyrrverandi forsætisráðherra Ísraels, skilur eftir sig í ísraelskum stjórnmálum og heimspólitíkinni verður vandfyllt. Það er ljóst að hann verður ekki þátttakandi í ísraelskum stjórnmálum á ný þótt hann lifi af heilablóðfallið sem hann fékk á dögunum og því taka nú við óvissutímar í landinu. Sharon hafði á síðustu mánuðum með aðgerðum sínum vakið vonir manna um að friðvænlegra væri fram undan í Mið-Austurlöndum.

Ástandið nú minnir að sumu leyti á það sem ríkti á þessum slóðum fyrir rúmum tíu árum. Þá höfðu Ísraelar og Palestínumenn nýverið staðfest annað Óslóarsamkomulagið, þegar öfgasinni myrti á Rabin forsætisráðherra við opinbera athöfn. Í kjölfarið tók jafnaðarmaðurinn Peres við embætti forsætisráðherra en sat þar ekki lengi, því eftir kosningarnar vorið 1996 settist Netanyahu í stólinn.

Fram undan eru kosningar í Ísrael. Þær höfðu verið ákveðnar í lok marsmánaðar áður en Sharon fékk síðara áfallið og líklegt þykir að sú ákvörðun standi óbreytt. Ehud Olmert, sem tók við forsætisráðheraembættinu í Ísrael í síðustu viku og hélt sinn fyrsta reglulega ríkisstjórnarfund í gær, þykir líklegur til að leiða Kadima-flokkinn, þótt hann þyki ekki eins mikill foringi og Sharon. Þrír nýir forystumenn munu því berjast um völdinn í Ísraels í kosningunum i vor, því bæði Verkamannaflokkurinn og Likud-bandalagið hafa valið sér nýja forystumenn. Netanyahu er aftur orðinn hugsanlegur forsætisráðherrakandídat fyrir Likud og hugsanlegt er að sagan frá 1996 endurtaki sig, þegar hann komst til valda.






×